spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 202312 leikmanna hópur Íslands fyrir nóvembergluggann – Einn nýliði í hópnum

12 leikmanna hópur Íslands fyrir nóvembergluggann – Einn nýliði í hópnum

Benedikt Guðmundsson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur valið liðið sitt fyrir næstu tvo leikina í undankeppni EuroBasket 2023 sem fara fram núna í nóvember.

Leikið verður í núna í nóvember og aftur í febrúar 2023 og þar með klárast þessi undankeppni. Mótherjar Íslands í riðlinum eru Spánn, Ungverjaland og Rúmenía. Ísland hefur leikið gegn Rúmeníu ytra og Ungverjalandi hér heima í nóvember fyrir ári síðan og tapaði báðum leikjum sínum. Núna er leikið er heima og að heiman að nýju en efsta liðið úr riðlinum í lok febrúar fer beint á EM 2023 en möguleiki er fyrir besta annað sætið að fylgja með á lokamótið (fjögur lið með bestan árangur úr öllum undanriðlunum tíu).

Núna í nóvember á Ísland sína næstu tvo leiki á dagskránni, fyrst verður leikið á útivelli gegn Spáni þann 24. nóvember í Huelva, og svo hér heima gegn Rúmeníu. Heimaleikurinn fer fram í Laugardalshöll sunnudaginn 27. nóvember kl. 16:30 og verður í beinni á RÚV, en miðasala er hafin og fer öll fram á STUBB (www.stubbur.app)

Lið Íslands:

Anna Ingunn Svansdóttir · Keflavík (2)

Ásta Júlía Grímsdóttir · Valur (6)

Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur (12)

Dagný Lísa Davíðsdóttir · Fjölnir (4)

Diljá Ögn Lárusdóttir · Stjarnan (2)

Elísabeth Ýr Ægisdóttir · Haukar (4)

Eva Margrét Kristjánsdóttir · Haukar (2)

Hildur Björg Kjartansdóttir · BC Namur-Capitale, Belgíu (36)

Isabella Ósk Sigurðardóttir · Njarðvík

Sara Rún Hinriksdóttir · Faenza Basket Project, Ítalíu (26)

Tinna Guðrún Alexandersdóttir · Haukar (Nýliði)

Þóra Kristín Jónsdóttir · AKS Falcon, Danmörk (25)

Þjálfari: Benedikt Guðmundsson

Aðstoðarþjálfarar: Halldór Karl Þórsson og Ólafur Jónas Sigurðsson.

Þær sem ekki gátu tekið þátt að þessu sinni vegna meiðsla voru Birna Valgerður Benónýsdóttir Keflavík, Hallveig Jónsdóttir Val, Helena Sverrisdóttir Haukum og Lovísa Björt Henningsdóttir Haukum.

Hérna er heimasíða mótsins

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -