Óhætt er að segja að íþróttaárið 2016 hafi verið hreint geggjað fyrir íþróttir á Íslandi og er körfuboltinn þar ekkert undanskilinn. Hæst bar líklegast það að karlalandsliðið hafi aftur tryggt sér sæti á lokamóti EuroBasket, en þó voru margir fleiri merkilegir hlutir að gerast. Hér fyrir neðan eru 10 stærstu fréttir ársins úr íslenskum körfubolta.
1. Ísland aftur á EuroBasket

Stærsti sigur þessa árs er nokkuð óumdeildur. Eftir að hafa náð að tryggja sér miða á síðusta lokamót Evrópukeppninnar var það vitað að það væri ekkert gefið að Ísland ætti eftir að ná að gera það aftur í þeirri undankeppni sem fram fór í sumar og haust. Því náðu þeir hinsvegar með því að tryggja sér góða stöðu í öðru sæti riðils síns eftir góðan sigur í lokaleik hér heima gegn sterku liði Belgíu. Besti leikmaður Íslands í undankeppninni var án vafa leikmaður Stjörnunnar, Hlynur Bæringsson, sem ekki bara leiddi liðið í flestum tölfræðiþáttum, heldur var hann ofarlega meðal allra leikmanna undankeppninnar í heild.
Liðið heldur því til sinnar annarrar lokakeppni í röð næstkomandi haust í Finnlandi, en þar mun Ísland leika með Slóveníu, Grikklandi, Frakklandi, Póllandi og heimamönnum í Finnlandi í riðli.
2. U20 drengja í A riðil

Undir 20 ára lið drengja komst upp úr sínum riðli og leikur því í A riðil Evrópumótsins næsta sumar. Í undanúrslitum mótsins sigruðu þeir gríðarlega sterkt lið Grikklands 70-67 í leik þar sem að Kári Jónsson var gjörsamlega á eldi, skoraði 29 stig. Töpuðu svo í úrslitum gegn Svartfjallalandi eftir framlengdan leik. Liðið mun þó engu að síður leika í A riðil mótsins 15.-23. júlí næstkomandi á Krít, en með Íslandi í riðli á mótinu eru Svartfjallaland, Frakkland og Tyrkland.
3. Gunnhildur Gunnarsdóttir

Eftir 11 ára einokun Helenu Sverrisdóttur á titlinum körfuknattleikskona ársins kom loksins nýtt nafn á bikarinn fyrr í þessum mánuði. Það var þá leikmaður Snæfells, Gunnhildur Gunnarsdóttir, sem tók við honum. Gunnhildur átti frábært ár þar sem hún, ásamt því að vera burðarás í landsliðinu, leiddi sínar stúlkur í Snæfell bæði til Íslands og bikarmeistaratitils.
4. U18 drengja meistarar í Finnlandi

Í lok júní urðu undir 18 ára lið drengja Norðurlandameistarar eftir að hafa gengið frá heimamönnum í Finnlandi í lokaleiknum 101-72. Í lokaleiknum var það Þórir Guðmundur Þorbjarnarson sem að dróg vagninn fyrir Ísland með 33 stig og 6 fráköst, en hann var síðan valinn í úrvalslið mótsins.
5. Ísland sigrar Ungverjaland

24. febrúar síðastliðinn vann íslenska kvennalandsliðið einn sinn stærsta sigur til þessa þegar að þær unnu sterkt lið Ungverjalands heima í Höllinni 87-77 í undankeppni Eurobasket 2017. 87 stig Íslands voru þau mestu sem landsliðið hafði áður skorað í Evrópukeppninni og í fyrsta sinn sem Ísland fór yfir 60 stiga múrinn. Helena Sverrisdóttir var atkvæðamest fyrir Ísland í leiknum með 29 stig.
6. Snæfell meistarar aftur eftir rosalegt einvígi gegn Haukum

Síðastliðið haust vann Snæfell sinn þriðja titil í röð eftir æðisgengna rimmu gegn deildarmeisturum Hauka. Serían fór í oddaleik inni í Hafnarfirði þar sem að, fyrir fullu húsi, Snæfell vann 67-59 sigur á heimastúlkum til þess að tryggja sér titilinn, en frá því að úrslitakeppnin var sett á laggirnar hefur aðeins einu liði, Keflavík, tekist að vinna 3 titla í röð áður. Snæfell vann einnig bikarmeistaratitil á tímabilinu eftir úrslitaleik gegn Grindavík.
7. Litlu Slátrararnir

Ein mest spennandi saga þessa tímabils hefur verið uppgangur Litlu Slátrarana frá Keflavík, en liðið er að mestu byggt upp af kornungum leikmönnum sem margar eru að stíga sín fyrstu skref í efstu deild. Nú þegar að tímabilið er rúmlega hálfnað eru þær efstar í Dominos deild kvenna, heilum tveimur sigurleikjum frá Snæfelli og Skallagrím.
8. Jón Arnór er kominn heim

Eitthvað kvisaðist út síðasta sumar um að einn besti leikmaður Íslands fyrr og síðar, Jón Arnór Stefánsson, væri á leiðinni aftur heim eftir farsælan feril í öllum bestu deildum heims. Ljóst var frá byrjun að hans gamla uppeldisfélag, KR, myndi selja sig dýrt til að geta tryggt sér starfskrafta kappans og að lokum, í lok ágúst skrifaði hann undir samning hjá þeim. Enn hefur hann þó ekkert spilað fyrir liðið, en er þó víst væntanlegur á parketið fljótlega eftir áramót.
9. Three-Peat KR

Síðasta haust vann KR sinn þriðja titil í röð eftir 3-1 sigur í lokaúrslitaseríu á Haukum. Mikill árangur fyrir Reykjavíkurfélagið það, en síðan að úrslitakeppnin var tekin upp hefur aðeins tveimur liðum áður tekist að vinna 3 titla eða fleiri í röð. Keflavík vann 3 titla í röð fyrir rúmum tíu árum og Njarðvík 4 í röð á 9. áratug síðustu aldar.
10. Stólarnir tróna á toppi deildarinnar

Eftir frekar slappa byrjun á mótinu fóru norðanmenn í Tindastól í hreinsanir í leikmannahóp og á þjálfarateymi. Ráku erlenda leikmenn sína Mamadou Samb, Pape Seck og þjálfarann Jose Maria Costa. Við tók framkvæmdarstjóri félagsins Israel Martin og ráðinn var Antonio Hester í stöðu erlends leikmanns. Síðan þá hefur liðið varla tapað leik og eru sem stendur (ásamt Stjörnunni) efstir í deildinni og til alls líklegir eftir áramót.




