Karfan.is brá sér í Grindavíkina í kvöld og kíkti á leik Grindavíkur og Njarðvíkur í 10. flokki drengja en þetta var leikur í undanúrslitum bikarkeppninar. Framtíðarstjörnur Íslands í körfuboltanum sýndu þetta kvöldið skemmtilega takta og baráttan var í fyrirrúmi hjá báðum liðum.
Leikurinn var í járnum nánast allan tímann en á lokasprettinum voru það Njarðvíkingar sem náðu að klára leikinn og sigra að lokum með 6 stiga mun 60:66. Hjá Njarðvík voru þeir Kristinn Pálsson og Magnús Traustason atkvæðamestir. Hjá Grindavík var Jón Axel Guðmundsson atkvæðamestur í skorun ásamt Hinrik Guðbjartssyni. Þrátt fyrir að þessir peyjar hafi staðið uppúr í stigaskorun þá fá allir drengirnir hrós frá Karfan.is fyrir að bjóða uppá spennandi og skemmtilegan körfubolta.
Á morgun leika svo Haukar gegn KR í hinum undanúrslitaleiknum en leikurinn Schenkerhöll þeirra Haukamanna.
Mynd: Kristinn Pálsson var atkvæðamestur fyrir Njarðvíkinga þetta kvöldið



