NBA deildin hefst í nótt með látum á NBAtv. Meistarar Celtics hefja leik á titilvörn sinni og taka á móti Cleveland Cavaliers. Þá er einnig eins og venjan er að meistararnir fái hringa á fingur sér sem eru einskonar medalíur fyrir sigur þeirra í NBA deildinni. Seinni leikur kvöldsins er svo ekki af verri endanum þar sem að Greg Oden fær eldskírn sína með Portland Trail Blazers í NBA deildinni og spilar gegn liðinu í öðru sæti frá því í fyrra L.A. Lakers



