spot_img

Lykill: Darryl Morsell

Lykilleikmaður 18. umferðar Bónus deildar karla var leikmaður nýliða ÍA Darryl Morsell.

Í gífurlega mikilvægum eins sigri ÍA gegn fyrrum félögum hans frá Keflavík var Darryl besti leikmaður vallarins. Á rúmum 39 mínútum spiluðum skilaði hann 36 stigum, 9 fráköstum, 5 stoðsendingum, stolnum bolta og 2 vörðum skotum. Þá var hann nokkuð skilvirkur í leiknum, með 8 fiskaðar villur, yfir 60% skotnýtingu og 38 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn Bónus deild karla

  1. umferð – Jordan Semple / Grindavík
  2. umferð – Khalil Shabazz / Grindavík
  3. umferð – Brandon Averette / Njarðvík
  4. umferð – Kári Jónsson / Valur
  5. umferð – Haukur Helgi Briem Pálsson / Álftanes
  6. umferð – Sigurður Pétursson / Álftanes
  7. umferð – Taiwo Badmus / Tindastóll
  8. umferð – Egor Koulechov / Keflavík
  9. umferð – Kristófer Acox / Valur
  10. umferð – Þórir Guðmundur Þorbjarnarson / KR
  11. umferð – Craig Edward Moller / Keflavík
  12. umferð – Seth Christian LeDay
  13. umferð – Tómas Orri Hjálmarsson / ÍR
  14. umferð – Dominykas Milka / Njarðvík
  15. umferð – Þórir Guðmundur Þorbjarnarson / KR
  16. umferð – KJ Doucet / KR
  17. umferð – Luka Gasic / Stjarnan
  18. umferð – Darryl Morsell / ÍA
Fréttir
- Auglýsing -