Ægir Þór Steinarsson og HLA Alicante máttu þola tap gegn Zunder Palencia í fyrsta leik 8 liða úrslita Leb Oro deildarinnar á Spáni, 88-57.

Palencia leiða því með einum sigri gegn engum, en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sig áfram í undanúrslitin.

Á rúmri 21 mínútu spilaðri í leiknum skilaði Ægir Þór einu stigi, fjórum fráköstum og fjórum stoðsendingum.

Annar leikur einvígis liðanna er komandi sunnudag 28. maí.

Tölfræði leiks