Lykilleikmaður 17. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Keflavíkur Daniela Wallen.
Í frekar öruggum sigurleik toppliðs Keflavíkur gegn liðinu sem var í öðru sæti, Haukum, var Daniela besti leikmaður vallarins. Á tæpum 38 mínútum spiluðum skilaði hún 23 stigum, 9 fráköstum, 4 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Þá var hún nokkuð skilvirk í leiknum, með 66% heildarskotnýtingu og 30 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

1. umferð – Danielle Rodriguez / Grindavík
2. umferð – Keira Robinson / Haukar
3. umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
4. umferð – Aliyah Collier / Njarðvík
5. umferð – Kiana Johnson / Valur
6. umferð – Eva Margrét Kristjánsdóttir / Haukar
7. umferð – Kiana Johnson / Valur
8. umferð – Danielle Rodriguez / Grindavík
9. umferð – Eva Margrét Kristjánsdóttir / Haukar
10. umferð – Aliyah Collier / Njarðvík
11. umferð – Keira Robinson / Haukar
12. umferð – Tinna Guðrún Alexandersdóttir / Haukar
13. umferð – Sanja Orozovic / Breiðablik
14. umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
15. umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
16. umferð – Kiana Johnson / Valur
17. umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík