Lykilleikmaður 11. umferðar Subway deildar karla var leikmaður Njarðvíkur Juan Nacho Martin.
Í gífurlega sterkum sigri Njarðvíkur gegn toppliði Keflavíkur í Ljónagryfjunni var Nacho besti leikmaður vallarins. Á rúmum 33 mínútum spiluðum skilaði hann 22 stigum, 8 fráköstum, 3 stoðsendingum, 2 stolnum boltum og vörðu skoti. Þá var hann nokkuð skilvirkur í leiknum, með 6 af 8 úr djúpinu, 70% heildarskotnýtingu og 33 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

- umferð – Everage Lee Richardson / Breiðablik
- umferð – Dedrick Deon Basile / Njarðvík
- umferð – Norbertas Giga / Haukar
- umferð – Dagur Kár Jónsson / KR
- umferð – Bragi Guðmundsson / Grindavík
- umferð – Jeremy Herbert Smith / Breiðablik
- umferð – Taylor Maurice Johns / ÍR
- umferð – Dedrick Deon Basile / Njarðvík
- umferð – Clayton Riggs Ladine / Breiðablik
- umferð – Ólafur Ólafsson / Grindavík
- umferð – Juan Nacho Martin / Njarðvík