Lykilleikmaður 9. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Hauka Eva Margrét Kristjánsdóttir.
Í gífurlega sterkum sigri Hauka á Val í Origo Höllinni var Eva Margrét besti leikmaður vallarins. Á rúmum 34 mínútum spiluðum skilaði hún 24 stigum, 14 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 vörðum skotum. Þá fiskaði hún 10 villur á andstæðingana í leiknum. Einnig var hún nokkuð skilvirk, með aðeins einn tapaðan bolta, yfir 60% skotnýtingu og 33 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

- umferð – Danielle Rodriguez / Grindavík
- umferð – Keira Robinson / Haukar
- umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
- umferð – Aliyah Collier / Njarðvík
- umferð – Kiana Johnson / Valur
- umferð – Eva Margrét Kristjánsdóttir / Haukar
- umferð – Kiana Johnson / Valur
- umferð – Danielle Rodriguez / Grindavík
- umferð – Eva Margrét Kristjánsdóttir / Haukar