Keflavík lagði Njarðvík í kvöld í 8. umferð Subway deildar kvenna, 73-80. Eftir leikinn er Keflavík eitt liða á toppi deildarinnar taplausar í fyrstu átta umferðunum á meðan að Njarðvík er í 4. sætinu með fjóra sigra og fjögur töp.
Karfan spjallaði við Isabellu Ósk Sigurðardóttur leikmann Njarðvíkur eftir leik í Ljónagryfjunni. Isabella var að leika sinn fyrsta leik fyrir Njarðvík í kvöld eftir að hafa komið frá uppeldisfélagi sínu Breiðablik.
Viðtal / SBS