Fimm leikir fóru fram í fyrstu deild karla í kvöld.

Hamar lagði Skallagrím í Borgarnesi, Sindri vann Ármann í Kennó, í Dalhúsum laut Fjölnir í lægra haldi gegn ÍA, Álftnesingar unnu Hrunamenn á Flúðum og á Selfossi báru heimamenn sigurorð af Þór.

Staðan í deildinni

Úrslit kvöldsins

Fyrsta deild karla

Skallagrímur 88 – 101 Hamar

Ármann 80 – 104 Sindri

Fjölnir 85 – 88 ÍA

Hrunamenn 78 – 87 Álftanes

Selfoss 114 – 68 Þór