Lykilleikmaður 6. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Hauka Eva Margrét Kristjánsdóttir.

Í sterkum sigurleik Hauka gegn Íslandsmeisturum Njarðvíkur í Ólafssal var Eva Margrét besti leikmaður vallarins. Á tæpum 35 mínútum spiluðum skilaði hún 19 stigum, 14 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta. Þá var hún einnig nokkuð skilvirk í leiknum, liðið +17 þær mínútur sem hún spilaði og með 26 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

  1. umferð – Danielle Rodriguez / Grindavík
  2. umferð – Keira Robinson / Haukar
  3. umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
  4. umferð – Aliyah Collier / Njarðvík
  5. umferð – Kiana Johnson / Valur
  6. umferð – Eva Margrét Kristjánsdóttir / Haukar