Lokamót EuroBasket fór af stað síðastliðinn fimmtudag í Georgíu, Tékklandi, Ítalíu og Þýskalandi. Eins og í síðustu skipti er riðlakeppnin á ólíkum stöðum álfunnar áður en útsláttarkeppnin hefst, en þetta árið fer hún öll fram í Berlín í Þýskalandi.

Eitthvað hefur verið um óvænt úrslit það sem af er móti þó flest hafi þau verið eftir bókinni. Fram að útsláttarkeppninni sem hefst komandi laugardag 10. september eru 48 leikir á dagskrá sem alla er hægt að horfa á fyrir vægt gjald í gegnum Courtside 1891. Á dagskrá í dag eru 12 leikir, þar sem að meðal annars Litháen og Frakkland mætast og Grikkland tekur á Ítalíu.

Hérna er heimasíða mótsins

RÚV mun þó einnig vera með beinar útsendingar frá völdum leikjum riðlakeppninnar, en hér fyrir neðan má sjá dagskrá næstu daga. RÚV mun svo sýna alla 16 leiki útsláttakeppninnar í beinni útsendingu frá 10. til 18. september.

Hér má sjá alla leiki dagsins

Dagskrá RÚV næstu daga:

03.09 – Litháen Frakkland – 15:45 – RÚV

03.09 – Grikkland Ítalía – 19:00 – RÚV 2

04.09 – Litháen Þýskaland – 12:30 – RÚV

07.09 – Tyrkland Spánn – 11:30 – RÚV

07.09 – Frakkland Slóvenía – 15:15 – RÚV 2