Grindavík hefur samið leikmanninn Elma Dautovic sem mun leika með félaginu í vetur í Subwaydeild kvenna.

Elma er 21. árs 187 cm slóvenskur framherji sem kemur til liðsins frá Sokol HK í Tékklandi þar sem hún lék á síðustu leiktíð. Hún hefur jafnframt leikið með yngri landsliðum Slóveníu sem hafa verið mjög öflug á undanförnum árum.

„Ég er mjög spenntur að fá Elmu til liðs við okkur. Hún kemur með aukna hæð inn í liðið. Elma er einnig fjölhæfur leikmaður með gott skot. Hún á eftir að styrkja liðið á marga vegu og mun vonandi passa vel inn í okkar lið,“ segir Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur.

Elma er mætt til landsins og vonar félagið að hún verði komin með leikheimild á miðvikudag þegar Grindavík mætir Íslandsmeisturum Njarðvík á útivelli.