Undir 18 ára stúlknalið Íslands leikur sinn fyrsta leik í dag á Evrópumótinu í Búlgaríu.

Ísland hefur leik í C-riðli og leikur gegn Noregi, Hollandi og Slóvakíu áður en leikið verður um sæti.

Fyrsti leikur liðsins er gegn Slóvakíu kl. 17:30.

Hérna er heimasíða mótsins

Hérna verður hægt að fylgjast með lifandi tölfræði

Hérna er 12 leikmanna lokahópur undir 18 ára liðs stúlkna

Leikurinn verður líkt og aðrir leikir mótsins sýndur í beinni vefútsendingu FIBA, en hana er hægt að nálgast hér.