Jón Axel Guðmundsson og Crailsheim Merlins lögðu Bayreuth í kvöld í þýsku úrvalsdeildinni, 90-85.
Eftir leikinn er Crailsheim í 9. sæti deildarinnar með 15 sigra og 13 töp það sem af er tímabili.
Á rúmum 7 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Jón Axel þremur stigum og þremur fráköstum.
Næsti leikur Jóns Axels og Crailsheim er þann 20. apríl gegn Alba Berlin.