Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og Landstede Hammers máttu þola tap í kvöld fyrir Kangoeroes í Elite Gold deildinni í Hollandi/Belgíu, 56-70.
Eftir leikinn er Landstede í 7. sæti deildarinnar með 17 stig.
Á rúmum 29 mínútum spiluðum skilaði Þórir Guðmundur tveimur stigum, tveimur fráköstum og tveimur stoðsendingum.
Næsti leikur Þóris og Landstede er þann 26. mars gegn Heroes Den Bosch.