Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og Landstede Hammers máttu þola tap í kvöld fyrir Leuven Bears í Elite Gold deildinni í Hollandi/Belgíu, 87-61.

Landstede eru eftiur leikinn í 9. sæti deildarinnar með 17 stig.

Á rúmum 24 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þórir Guðmundur 9 stigum, 5 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta.

Næsti leikur Þóris og Landstede er þann 30. mars gegn toppliði Filou Oostende.

Tölfræði leiks