Lykilleikmaður 21. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Hauka Helena Sverrisdóttir.

Í gífurlega sterkum sigri Hauka gegn toppliði Fjölnis í Dalhúsum var Helena besti leikmaður vallarins. Á tæpum 35 mínútum spiluðum skilaði hún 21 stigi, 15 fráköstum, 10 stoðsendingum og 2 stolnum boltum. Þá var hún einnig nokkuð skilvirk, með aðeins 1 tapaðan bolta og 34 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn:

  1. umferð – Ameryst Alston / Val
  2. umferð – Ameryst Alston / Val
  3. umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
  4. umferð – Anna Ingunn Svansdóttir / Keflavík
  5. umferð – Aliyah A’taeya Collier / Njarðvík
  6. umferð – Sanja Orozovic / Fjölnir
  7. umferð – Aliyah A’taeya Collier / Njarðvík
  8. umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
  9. umferð – Robbi Ryan / Grindavík
  10. umferð – Dagný Lísa Davíðsdóttir / Fjölnir
  11. umferð – Dagný Lísa Davíðsdóttir / Fjölnir
  12. umferð – Ameryst Alston / Val
  13. umferð – Sanja Orozovic / Fjölnir
  14. umferð – Aliyah Daija Mazyck / Fjölnir
  15. umferð – Keira Robinson / Haukar
  16. umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
  17. umferð – Aliyah Daija Mazyck / Fjölnir
  18. umferð – Keira Robinson / Haukar
  19. umferð – Aliyah Daija Mazyck – Fjölnir
  20. umferð – Robbi Ryan / Grindavík
  21. umferð – Helena Sverrisdóttir / Haukar