Breiðablik lagði Íslandsmeistara Vals í kvöld í Origo Höllinni í Subway deild kvenna, 66-78. Eftir leikinn er Valur í 3. sæti deildarinnar með 16 stig á meðan að Breiðablik er í 7. sætinu með 4 stig.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Dagbjörtu Dögg Karlsdóttur leikmann Vals eftir leik í Origo Höllinni. Dagbjört átti ágætisleik þrátt fyrir tapið, skilaði 11 stigum, 3 fráköstum og 3 stoðsendingum.