Sigrún Björg Ólafsdóttir og Chattanooga Mocs máttu þola 10 stiga tap í gærkvöldi fyrir Jacksonville State Gamecocks í bandaríska háskólaboltanum, 51-61.
Það sem af er tímabili hafa Mocs unnið tvo leiki og tapað þrettán.
Á 28 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Sigrún Björg 5 stigum, 4 fráköstum, stoðsendingu og 2 stolnum boltum.
Næsti leikur Sigrúnar og Mocs er þann 7. janúar gegn Samford Bulldogs.