Lykilleikmaður 12. umferðar Subway deildar kvenna var leikmaður Vals Ameryst Alston.

Í framlengdum spennusigri Íslandsmeistarana í Keflavík var Ameryst besti leikmaður vallarins. Á rúmum 43 mínútum spiluðum skilaði hún 33 stigum, 18 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta. Þá var hún nokkuð skilvirk í leiknum, en hún fékk 35 framlagsstig fyrir frammistöðuna.

Lykilleikmenn:

  1. umferð – Ameryst Alston / Val
  2. umferð – Ameryst Alston / Val
  3. umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
  4. umferð – Anna Ingunn Svansdóttir / Keflavík
  5. umferð – Aliyah A’taeya Collier / Njarðvík
  6. umferð – Sanja Orozovic / Fjölnir
  7. umferð – Aliyah A’taeya Collier / Njarðvík
  8. umferð – Daniela Wallen Morillo / Keflavík
  9. umferð – Robbi Ryan / Grindavík
  10. umferð – Dagný Lísa Davíðsdóttir / Fjölnir
  11. umferð – Dagný Lísa Davíðsdóttir / Fjölnir
  12. umferð – Ameryst Alston / Val