Lykilleikmaður 14. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Breiðabliks Jessica Kay Loera.
Á tæpum 32 mínútum spiluðum í gífurlega öflugum sigri Breiðabliks á Val var Jessica besti leikmaður vallarins. Skilaði 20 stigum, 5 fráköstum, 13 stoðsendingum og 5 stolnum boltum. Þá var hún Blikum mikilvæg undir lok leiksins, setti niður þrist í stöðunni 69-69 og kom þeim 3 stigum yfir þegar aðeins 14 sekúndur voru eftir af leiknum. Þá eru 13 stoðsendingar það mesta sem leikmaður hefur skilað í einum leik það sem af er tímabili.

- umferð – Daniela Wallen Morillo
- umferð – Lina Pikciuté
- umferð – Lina Pikciuté
- umferð – Alyesha Lowett
- umferð – Isabella Ósk Sigurðardóttir
- umferð – Daniela Wallen Morillo
- umferð – Daniela Wallen Morillo
- umferð – Ariel Hearn
- umferð – Daniela Wallen Morillo
- umferð – Annika Holopainen
- umferð – Kiana Johnson
- umferð – Ariel Hearn
- umferð – Ariel Hearn
- umferð – Jessica Kay Loera