KR lagði Stjörnuna í kvöld í tíundu umferð Dominos deildar karla, 100-91. Eftir leikinn er Stjarnan jöfn Þór í 2.-3. sæti deildarinnar með 14 stig á meðan að KR eru í því 4. með 12 stig.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við leikmann Stjörnunnar, Hlyn Bæringsson, eftir leik í DHL Höllinni. Hlynur átti frekar góðan leik fyrir Stjörnuna í kvöld þrátt fyrir tapið, skilaði 18 stigum, 11 fráköstum og 4 stoðsendingum.