Tíunda umferð Dominos deildar karla fer af stað í kvöld með fjórum leikjum.
Þórsarar taka á móti nöfnum sínum úr Þorlákshöfn í Höllinni á Akureyri, Grindavík heimsækir Tindastól í Síkið á Sauðárkróki, Höttur tekur á móti Haukum á Egilsstöðum og í Vesturbænum eigast við KR og Stjarnan.
Leikir dagsins
Dominos deild karla:
Þór Akureyri Þór – kl. 18:15 – Í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
Tindastóll Grindavík – kl. 19:15 – Í beinni útsendingu Tindastóll Tv
Höttur Haukar – kl. 19:15 – Í beinni útsendingu Höttur Tv
KR Stjarnan – kl. 20:15– Í beinni útsendingu Stöð 2 Sport