Í kvöld fer fram nýliðavalið í NBA og er landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason í valinu. Það er búið að vera mikil keyrsla á Tryggva að undanförnu en hann er búinn að heimsækja sex borgir um gjörvöll Bandaríkin til að sýna sig fyrir NBA liðum.

Tryggvi kom seint til New York í gærkvöldi en hafði þá verið að æfa hjá Oklahoma City Thunders fyrr um daginn.

Hljóðið í Tryggva var mjög gott en smá þreyttur eftir keyrslu síðustu daga. ,,Ég er mjög spenntur fyrir kvöldinu og stoltur af tækifærinu sem er ég búinn að fá að undanförnu,'' sagði Tryggvi. Ris hans í körfuboltaheiminum hefur verið mjög hratt en Bárðdælingurinn er afar jarðbundin og hógvær. ,,Þó ég hafi verið að æfa hjá þessum liðum þá veit ég að það er ekki sjálfgefið að ég verði valinn. En ef það gerist verð ég þakklátur tækifærinu og mun leggja mig fram til að nýta það,'' bætti Tryggvi áður en hann dreif sig út að finna á sig spariskó en það virðist vera ansi krefjandi að finna spariskó í stærð 51.

Tryggvi er búinn að taka æfingu hjá Phoenix, Dallas, Denver, LA Clippers, Boston og Oklahoma.

Hannes S. Jónsson formaður KKÍ segir að þetta sé stór dagur fyrir íslenskan körfubolta. ,,Hvort sem hann verði valinn eða ekki er þetta stór dagur og mikill heiður fyrir Tryggva og íslenskan körfubolta. Og er ánægjulegt að sjá að íslenska körfuboltann vekji svona athygli vestanhafs.''

Nýliðavalið hefst kl. 23.00 í kvöld að íslenskum tíma.

 

Mynd: Tryggvi ásamt foreldrum sínum, Hlini Gíslasyni og Guðrúnu Tryggvadóttur, í dag í New York.