Valsarar náðu í dag 2-0 forystu í undanúrslitaeinvígi liðsins gegn Keflavík í Dominos deild kvenna. Leikurinn fór fram í Valshöllinni í dag og var hann æsispennandi.
Keflavík hafði forystuna í fyrri hálfleik en Valur tók við bílstjórasætinu þegar leið á seinni hálfleikinn. Lokamínúturnar voru æsispennandi en stóru skotin féllu hjá heimakonum.
Karfan spjallaði við leikmann Keflavíkur, Thelmu Dís Ágústsdóttir, eftir leik á Hlíðarenda.