Þjálfari Dominos deildarliðs Hattar, Viðar Örn Hafsteinsson, hefur reimað á sig skóna á nýjan leik og tekur þessa stundina þátt með sínum mönnum gegn ÍR í Brauð og Co Höllinni á Egilsstöðum. Viðar hafði fyrir leik kvöldsins ekki leikið með sínum mönnum þetta tímabilið, en í 24 leikjum í 1. deildinni á því síðasta skilaði hann 8 stigum, 3 fráköstum og stoðsendingu að meðaltali í leik.
King @vidarhafsteins búinn að reima á sig skóna! Fyrsti sigur ársins kemur í kvöld, áfram Höttur! #dominos365 búmmmmmm
— Gummó (@Dullarinn) January 7, 2018