A landslið karla hefur leik í undankeppni HM komandi föstudag þegar að þeir mæta heimamönnum í Tékklandi. Leikurinn annar tveggja sem liðið leikur í þessum glugga, en sá seinni er heima í Laugardalshöllinni þann 27. næstkomandi gegn Búlgaríu.
Endanlegt lið koma saman seint á mánudag, þar sem að þjálfarinn Arnar Guðjónsson og leikmennirnir Martin Hermannsson, Haukur Helgi Pálsson og Jakob Örn Sigurðarson komu til móts við liðið í Prag í Tékklandi. Myndir frá annarri æfingu liðsins, sem fram fór í morgun má sjá hér.