A landslið karla hefur leik í undankeppni HM í dag þegar að þeir mæta heimamönnum í Tékklandi. Leikurinn annar tveggja sem liðið leikur í þessum glugga, en sá seinni er heima í Laugardalshöllinni þann 27. næstkomandi gegn Búlgaríu.
Í morgun æfði liðið í Tipsport Höllinni í Pardubice, þar sem leikurinn mun fara fram.
Karfan spjallaði við nýliðann Tómas Þórð Hilmarsson og fyrirliðann Hlyn Bæringsson eftir æfingu í morgun.