Lykilleikmaður 22. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Keflavíkur, Emelía Ósk Gunnarsdóttir. Í sigri hennar kvenna á Stjörnunni skoraði Emelía 18 stig, tók 5 fráköst og varði 2 skot. Þetta er í fimmta skiptið í vetur sem að Emelía er lykilleikmaður umferðarinnar.

 

Aðrar tilnefndar voru leikmaður Hauka, Þóra Kristín Jónsdóttir, fyrir frammistöðu sína gegn Grindavík, leikmaður Njarðvíkur, Carmen Tyson Thomas, fyrir frammistöðu sína gegn Val og leikmaður Snæfells Aaryn Ellenberg Wiley, fyrir frammistöðu sína gegn Skallagrím.