Öllum leikjum er lokið í áttaliða úrslitum í Maltbikarkarla og kvenna. Margir skemmtilegir leikir fóru fram og er nú ljóst hvaða lið verða í pottinum þegar dregið verður í næstu umferð bikarsins.
Fjögur lið eru eftir í Maltbikar karla en þar af eru þrjú lið úr Dominos deild kara. Eitt lið eru úr fyrstu deild, Valur eftir frábæran sigur á Haukum.
Í Maltbikar kvenna eru fjögur lið eftir, öll úr Dominos deildinni en það eru þrjú efstu lið deildarinnar auk Hauka.
Öll liðin sem eftir eru má sjá hér að neðan: Dregið verður í næstu umferð í dag (17. janúar) kl 13 og verður Karfan.is með beina lýsingu á Twitter.
Undanúrslit í Maltbikar karla:
Valur
Grindavík
KR
Þór Þ.
Undanúrslit í Maltbikar kvenna:
Snæfell
Skallagrímur
Haukar
Keflavík
Mynd / Jón Björn – Grindavík fagnar sigri gegn Njarðvík í 16 liða úrslitum.