Stjarnan í Garðabæ hefur náð samkomulagi við Anthony Odunsi um að leika með liðinu það sem eftir lifir af leiktíðinni árið 2017. Anthony er 24 ára gamall og útskrifaðist frá Houston Baptist háskólanum síðasta vor. Hann telst því nýliði í Evrópukörfuboltanum.

Aðspurður sagði Hrafn að nokkrar ástæður hefðu legið fyrir skiptunum, ekki síst nýskeðar breytingar í leikmannahópi Garðbæinga.  „Eftir meiðsli Marvins varð helsta staða Devon hjá okkur staða kraftframherja.  Nú þegar styttist í að bæði Marvin og Sæmundur komi úr meiðslum og Tómas Þórður er kominn aftur frá Bandaríkjunum er ljóst að hans hlutverk yrði aftur mestmegnis sem bakvörður hjá okkkur.  Þegar það varð ljóst varð niðurstaðan að leita eftir leikmanni sem mögulega hefði til að bera annars konar eiginleika í þeirri stöðu en Devon hefur til að bera til að gera hóp okkar enn þéttari fyrir seinni hlutann.  Að mínu mati er Anthony slíkur leikmaður.  Hann er bæði sterk skytta af færi og fær í að komast fram hjá varnarmönnum með boltann í höndunum sem voru eiginleikar sem ég var að leita eftir.  Við kveðjum Devon með söknuði, enda topp atvinnumaður sem hefur heilt yfir skilað mjög góðu verki fyrir okkur.“

 

Odunsi þykir líkamlega sterkur bakvörður sem getur leikið allar þrjár bakvarðastöðurnar.  Á síðasta tímabili með Houston Baptist háskólanum skoraði hann 17.5 stig að meðaltali auk þess sem hann tók 4.6 fráköst og sendi 3.7 stoðsendingar.  Það vakti mikla athygli síðasta tímabil að hann skipaði þriðja sæti yfir alla leikmenn efstu deildar háskólaboltans yfir hversu mörg vítaskot hann tók að meðaltali en hann tók að meðaltali 9.2 slík í hverjum leik.

Meðfylgjandi er myndskeið frá Anthony Odunsi  á síðasta tímabili með Houston Baptist.