Ísland mætir Sviss í undankeppni Eurobasket 2017 í Fribourg á morgun kl 15:30. Liðin leika í annað sinn en Ísland hafði sigur í fyrri leiknum með 11 stigum.
Leikið verður í Site Sportif Saint-Leonard vellinum sem tekur nærri 3000 manns í sæti.
Íslenska liðið æfði í fyrsta skipti á vellinum í dag og var góð stemmning í hópnum. Jón Arnór Stefánsson var með á æfingu í dag og verður ákveðið á morgun um þátttöku hans.
Myndasafn af æfingu má sjá hér inná.