Íslensku strákarnir fögnuðu vel sínum fyrsta sigri á EM í Búlgaríu í gær 59-74. Staðan í hálfleik var 23-40 Íslensku strákunum í vil. Nökkvi Már Nökkvason var á eldi í leiknum með 7/12 í þristum og í heildina 22 stig gegn liði Makedóna.
Eftir góðan fund í gærmorgun og æfingu voru drengirnir vel einbeittir í verkefni dagsins en þeir unnu Portúgali með 10 stiga mun í fyrradag. Meiri kraftur var í öllum aðgerðum og tóku strákarnir frumkvæðið strax í upphafi. Gísli Hallsson fór mikinn í upphafi leiks og varði fjögur skot á skömmum tíma auk þess að raða niður stigum á töfluna. Staðan eftir fyrsta leikhluta 13-18 Ísland í vil. Gabríel og Nökkvi voru að hitta vel og allir sem komu á gólfið léku mjög vel. Frábær annar leikhluti skilaði liðinu mest 20 stiga forystu 20-40 en síðustu þrjú stig síðari hálfleiks voru Makedóníu og leiddu íslensku strákarnir með 17 stiga mun 23-40. Í Hálfleik voru Gísli Hallsson með 13 stig og Gabríel Sindri Möller 12. Sigmar Jóhann, Hákon og Gísli voru komnir í villuvandræði í hálfleik.
Þriðji leikhluti var rólegur í stigaskori framan af en Makedóníumenn sigruðu leikhlutann 17-13 og minnkuðu muninn í 40-53. Sigmar Jóhann og Gísli villuðu útaf í leikhlutanum en baráttan í seinni hálfleik harðnaði til muna. Strákarnir stóðust pressuna en hittni Nökkva Má Nökkvasonar hélt strákunum á floti, kappinn smellti niður sjö slíkum í tólf tilraunum, þar af fjórum í lokaleikhlutanum. Lokatölur 59-74.
Næsti leikur er í dag gegn fyrnasterku liði Eistlands, en þeir eru taplausir og hafa sigrað leiki sína með miklum mun í riðlinum. Leikurinn hefst klukkan 17:30 að íslenskum tíma og hægt er að fylgjast með honum á heimasíðu mótsins
FIBA U16
Staðan í D-riðli Íslands
Mynd/ U16 ára liðið í Leifsstöð á dögunum á leið sinni til Búlgaríu.