Bandaríski bakvörðurinn Taleya Mayberry mun spila með liði Vals í seinni hluta Dominos-deild kvenna í körfubolta en Valsmenn hafa gert samning við þessa 23 ára gömlu stelpu sem útskrifaðist frá Tulsa-háskólanum. www.visir.is greinir frá.
Taleya Mayberry kemur í staðinn fyrir Joannu Harden sem yfirgaf Val þegar þrír leikir voru eftir af fyrri umferðinni en Harden var þriðji stigahæsti leikmaður fyrri umferðarinnar með 26,3 stig að meðaltali í leik.
Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals, staðfesti komu Taleyu Mayberry við Vísi og segir að verið sé að vinna í því að fá leikheimild fyrir hana fyrir fyrsta leikinn á nýju ári sem verður gegn KR 7. janúar næstkomandi.
Taleya Mayberry á frægan körfuboltapabba en faðir hennar Lee Mayberry spilaði 496 leiki í NBA-deildinni frá 1992 til 1999 og var með 5,1 stig og 3,6 stoðsendingar að meðaltali í þeim.