Í hádeginu var dregið í undanúrslit karla og kvenna í Poweradebikarkeppninni. Undanúrslitin fara fram dagana 1.-2. febrúar næstkomandi. Upp úr bikarskálinni góðu kom sú niðurstaða að toppliðin í Domino´s deildunum munu mætast í undanúrslitum Poweradebikarsins.
Undanúrslit Poweradebikarsins 2015
Undanúrslit kvenna
Keflavík-Snæfell
Grindavík-Njarðvík
Undanúrslit karla
KR – Tindastóll
Skallagrímur – Stjarnan
Leikdagar eru 1.-2. febrúar næstkomandi.
Sveinbjörn Claessen leikmaður ÍR og Ingibjörg Jakobsdóttir leikmaður Grindavíkur sáu um bikardráttinn í dag en þau eiga það sammerkt að bæði hafa orðið bikarmeistarar á ferlinum.
Mynd/ nonni@karfan.is