Íslenska U15 ára landsliðið hafði sigur á Copenhagen Invitational mótinu í dag. Liðið lagði Dani að velli í framlengdum úrslitaleik.
Eftir æsispennandi leik var staðan 43 – 43 eftir venjulegan leiktíma og því þurfti að framlengja. Stelpurnar sýndu mikinn styrk í að klára leikinn og endaði hann með 7 stiga sigri, 57:50.
Björk Gunnarsdóttir var valin í úrvalslið mótsins.
Stigaskor leikmanna:
Sylvía 28
Thelma 19
Elfa 6
Björk 2
Elín 2
Þetta er í fyrsta skipti sem stúlkurnar ná í gull á þessu móti.
Frétt og mynd/ www.kki.is