21:51
{mosimage}
Ragna Margrét Brynjarsdóttir hefur verið iðin við kolann á Norðurlandamótinu í Svíþjóð, þar sem hún er með frákastahæstu leikmönnum mótsins. Karfan.is ræddi við svekktan miðherja 18 ára landsliðs kvenna eftir leikinn gegn Finnum.
{mosimage}
Þú hefur verið mjög grimm allt mótið og lent þar af leiðandi í talsverðum villuvandræðum, hefurðu hugsanlega verið of grimm?
Þetta er ekkert nýtt, þetta er búið að vera svona í allan vetur.
Ágæt frammistaða hjá ykkur í fyrri hálfleik en þið lentuð svo í vandræðum í byrjun þriðja leikhluta og komuð sterkar til baka eftir það. Hvað var það sem gerðist í byrjun þriðja leikhluta hjá ykkur?
Ég veit það ekki. Við ætluðum náttúruleg að spila 100% í 40 mínútur og það var það sem við gerðum, það var bara okkar markmið fyrir þennan leik.
Þetta er að margra mati ykkar besti leikur á mótinu en tapið engu að síður gegn sterku finnsku liði. Heldurðu að þið hefðuð getað tekið þetta með örlítið meiri einbeitingu?
Já, alveg pottþétt, það vantaði ekki mikið upp á.