U15 ára liðin héldu í gær á hið árlegaCopenhagen Invitational-mótið í Danmörku. Á vefsíðu mótsins er hægt að sjá stöðu, úrslit og dagskrá.
Stelpurnar eru í D-riðli með Danmörku, Englandi og Berlínar-úrvalsliði.
Strákarnir eru í F-riðli og leika gegn Hollandi, Berínar-úrvalsliði og úrvalsliði austur Noregs.
Eftir riðlakeppnina er farið í úrslit og leikið um sæti.
Íslensku liðin hafa staðið sig mjög vel á þessu móti undanfarið og hafa dengir meðal annars sigrað og hafnað í 2. sæti á síðastliðnum árum.
Fyrsta leik er lokið hjá U15 ára liði karla þar sem það skellti Berlínarúrvalinu 82-46.
www.kki.is



