
Fullt nafn: Svava Ósk Stefánsdóttir
Aldur: 24 ára
Félag: Keflavík
Hjúskaparstaða/börn: Í sambúð og á eina dóttir
Nám/Atvinna: Leikskólakennari
Happatala: 11
Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? 8 ára í Keflavík
Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Ég fór að æfa körfu því að báðir bræður mínir voru að æfa svo þeir hafa eflaust verið mín fyrsta fyrirmynd en svo var það að sjálfsögðu Anna María Sveinsdóttir.
Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Jón Arnór og Páll Axel. Birna Valgarðs og Signý Hermanns. Veit lítið um 1 deild karla.
Besti erlendi leikmaðurinn sem leikur í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Cedric Isom, LaKiste Barkus. Pass á 1.deild karla.
Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir? Telma Lind Ásgeirsdóttir (Keflavík)
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Einar Einarsson
Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? Jón Halldór Eðvaldsson, Sigurður Ingimundarson og stórvinur minn hann Ingi Þór.
Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? Jón Halldór Eðvaldsson, Sigurður Ingimundarson og stórvinur minn hann Ingi Þór.
Uppáhals NBA leikmaðurinn þinn? Michael Jordan
Besti leikmaður NBA deildarinnar í dag? LeBron James
Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik? Já, Minnesota Timberwolves vs San Antonio Spurs
Sætasti sigurinn á ferlinum? Bikarleikurinn á móti KR 2004 en allir sigrar eru sætir : )
Sárasti ósigurinn? Bikarleikurinn á móti Haukum 2007.
Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta? Fótbolti
Með hvaða félögum hefur þú leikið? Keflavík
Uppáhalds:
kvikmynd: Allar kellingamyndir :)
leikari: Jim Carrey
leikkona: Cameron Diaz
bók: The Secret
matur: allt sem mamma og tengdó elda
matsölustaður: Cheesecake factory
lag: Mörg get ekki valið eitt
hljómsveit: Engin ein sem stendur upp úr
staður á Íslandi: Syðri Reykir
staður erlendis: Sumarhús mömmu og pabba á Spáni
lið í NBA: Boston
lið í enska boltanum: Man Utd.
hátíðardagur: Aðfangadagur
alþingismaður: pass
alþingiskona: Þorgerður Katrín
heimasíða: Karfan.is og Facebook
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki? Hugsa um leikinn og hvert mitt hlutverk mun vera í honum.
Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum? Báðum
Furðulegasti liðsfélaginn? Pálína er stórfurðuleg á skemmtilegan hátt
Besti dómarinn í IE-deildinni? Allir góðir.... bara misgóðir
Erfiðasti andstæðingurinn? Pálína Gunnlaugs. Hef spilað bæði með henni og á móti alltaf í andlitinu á manni.
Þín ráð til ungra leikmanna? Æfa vel og hafa gaman að því að spila körfubolta
(Spurning frá Kristrúnu Sigurjónsdóttur sem var síðast í 1 á 1)
Er kreppan það besta sem gat komið fyrir íslenskan körfubolta?
Já og Nei. Já því að ungir leikmenn fá tækifæri og reyndari leikmenn þurfa að taka að sér stærri hlutverk en aftur á móti minnka gæðin á leiknum svona til að byrja með en það lagast með tímanum.
Að hverju viltu spyrja þann sem verður næst í 1 á 1?
Hvort myndir þú vilja vera atvinnumaður í körfubolta eða fótbolta og afhverju ?
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Könnun
Mynd af handahófi