Fullt nafn: Lárus Ingi Magnússon
 
Aldur: 38 ára
Félag: Fjölnir
Hjúskaparstaða/börn: Giftur 4 barna faðir
Happatala: engin sérstök
 
Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? 10 ára í félagsheimilinu á Hvolsvelli
 
 
Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? eingin sérstök
 
Hvenær byrjaðir þú að dæma? Nóv. 2000
 
Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í karla og kvennaflokki frá upphafi?
Erfitt að bera saman ólíka tíma en segi Jón Arnór/ Teitur og Helena / Anna María
 
Besti erlendi leikmaðurinn sem leikið hefur á Íslandi? Brenton
 
Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir? Hörður Axel og Brynjar Björns
 
Besti dómarinn á Íslandi? Allt snillingar, en ætli við segjum ekki Simmi og Kiddi
til að nefna einhverja
 
Efnilegasti dómarinn á Íslandi? Jóhann Gunnar
 
 
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Ragnar Sigurðsson
 
Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? Ekki hægt að taka neinn út úr þessum góða hópi
þjálfara á Íslandi
 
Uppáhals NBA leikmaðurinn þinn? Steve Nash
 
Besti leikmaður NBA deildarinnar frá upphafi? Jordan
 
Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik? Nei
 
Sætasti sigurinn á ferlinum? Golfmót KKDÍ 2004
 
Sárasti ósigurinn? Golfmót KKDÍ 2006
 
Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta? Kannski golf!!!
Með hvaða félögum hefur þú leikið? Selfoss, Laugdælum, Val, Létti, Fylki,
Breiðablik, Fjölni og ÍS
 
Uppáhalds:
kvikmynd: JFK, þarf bara að gefa sér góðan tíma í svoleiðis myndir
leikari: Bruce Willis
leikkona: Meg Ryan
bók: Liverpoolbókin
matur: jóla hamborgarahryggurinn
matsölustaður: Eldhúsið hjá tengdó og svo kemur eldhúsið hjá konunni sterkt inn
líka.
lag: Bohemian Rhapsody
hljómsveit: Queen og Sálin
staður á Íslandi: Herjólfsdalur
staður erlendis: Anfield
lið í NBA: Bulls
lið í enska boltanum: Liverpool
hátíðardagur: 17.05.2003 Brúðkaupsdagurinn
alþingismaður: 63 kjánar hverju sinni
Vefsíða: kkdi.is og karfan.is
 
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki? Gott pree game með félaganum, Magic og slökun.
 
Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum? Tap
 
Furðulegasti dómarinn? Háaldraður haltur rakari.
 
Þín ráð til ungra dómara? Lesa, horfa, skoða. Sanka að sér eins miklum fróðleik og
hægt er, sjá eins marga leiki og hægt er, og síðast en ekki síst að skoða á
myndbandi það sem þú sjálfur/sjálf ert að gera.
Tölfræði safn KKÍ

Könnun

Verða Miami Heat NBA meistarar á næstu leiktíð?

Nei

 

Mynd af handahófi