Fullt nafn: Jóhanna Björk Sveinsdóttir
 
 
Aldur: 18 ára
 
Félag: Hamar
 
Hjúskaparstaða: Á lausu
 
Happatala: 6
 
Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? Þegar ég var 10 ára með Hamri í Hveragerði
 
Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Það var Lalli Jóns í Hamri og svo auðvitað Jordan
 
Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í karla og kvennaflokki frá upphafi?
Helena Sverrisdóttir og Jón Arnór Stefánsson
 
Besti erlendi leikmaðurinn sem leikið hefur á Íslandi?
Úff, ég veit ekki
 
Efnilegasti leikmaður landsins um þessar
mundir? Margrét Kara í Keflavík
 
 
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn?
Daði Steinn Arnarsson
 
Besti þjálfarinn á Íslandi í dag?
Auðvitað Ari Gunn
 
Uppáhals NBA leikmaðurinn þinn?
Michael Jordan og Steve Nash
 
Besti leikmaður NBA deildarinnar frá upphafi?
Auðvitað Michael Jordan
 
Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik?
Nei, ekki karlaleik en ég hef farið á WNBA leik en þá voru Indiana Fever og New York Liberty að spila
 
Sætasti sigurinn á ferlinum?
Það er erfitt að gera upp á milli seinustu tveggja leikjanna á seinasta tímabili sem voru á móti Keflavík og Breiðablik. Við urðum að vinna þá báða til að halda okkur uppí í fyrstu deild sem við gerðum =)
 
Sárasti ósigurinn?
Þegar við töpuðum á móti Breiðablik í 3. leik liðanna á seinasta tímabili en eftir tapið voru við komnar í frekar óþægilega stöðu.
 
Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta?
Fótbolti
 
Með hvaða félögum hefur þú leikið?
Hamri
 
Uppáhalds:
 
kvikmynd: Love and Basketball, Remember the Titans, Coach Carter og John Q
leikari: Denzel Washington
leikkona: engine sérstök
bók: Flestar eftir Arnald Indriðason
matur: Nautalund með góðri sósu og bökuð kartafla.
matsölustaður: Pylsuvagninn á Selfossi
lag: The Way I Are með Timbaland
hljómsveit: Eiginlega engine sérstök en The Fugees voru í miklu uppáhaldi áður fyrr.
staður á Íslandi: Heima :)
staður erlendis: New York og Kopaonik í Serbíu þar sem við í Hamri fórum í æfingabúðir fyrir tveim árum.lið í NBA: Cleveland Cavaliers
lið í enska boltanum: Fylgist lítið með honum en hélt með Liverpool þegar ég fylgdist aðeins með.
hátíðardagur: Jólin
alþingismaður: Fylgist lítið sem ekkert með stjórnmálum
heimasíða: Karfan.is
 
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki?
Ég borða hollan mat og drekk mikið vatn. Ég hugsa mikið um leikinn og hvernig ég eigi að spila á móti andstæðingnum
 
Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum?
Það er hægt að læra mikið af bæði tap og sigurleikjum en eftir tapleiki hugsar maður meira um hvað það er sem maður getur gert betur.
 
Furðulegasti liðsfélaginn?
Pottþétt Fanney Lind ;)
 
Besti dómarinn í IE-deildinni?
Get ekki valið á milli.
 
Erfiðasti andstæðingurinn?
Helena Sverrisdóttir
 
Þín ráð til ungra leikmanna?
Mæta alltaf 100% á allar æfingar og leiki því maður nær engum árangri ef maður er ekki tilbúin að leggja sig fram
Tölfræði safn KKÍ

Könnun

Verða Miami Heat NBA meistarar á næstu leiktíð?

Nei

 

Mynd af handahófi