Fullt nafn: Haukur Helgi Pálsson
 
Aldur: 15 á 16 ári
 
Félag: Fjölnir
 
Hjúskaparstaða: Lausu
 
Happatala: 13
 
Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? Ég byrjaði 8 ára hjá Ragga Torfa í fjölni
 
Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Bræður mínir Tryggvi og Magnús Pálssynir
 
Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Brenton Njarðvik, veit voða lítið um hinar deildirnar.
 
Besti erlendi leikmaðurinn sem leikur í Iceland Express-deild karla og kvenna og 1. deild karla? Darrell Flake og TaKesha Watson, horfi nú voðalítið á 1 deildina þannig ég veit það bara ekki.
 
Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir? Ægir Þór Steinarsson
 
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Raggi Torfa
 
Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? Benedikt Guðmundsson
 
Uppáhalds NBA leikmaðurinn þinn? Kobe Bryant
 
Besti leikmaður NBA deildarinnar í dag? Kobe Bryant
 
Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik? Nei en maður stefnir á það.
 
Sætasti sigurinn á ferlinum? NM 2007
 
Sárasti ósigurinn? Úrslitaleikurinn á NM 2008
 
Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta? Körfubolti!
 
Með hvaða félögum hefur þú leikið? Fjölni.
 
Uppáhalds:
kvikmynd: Braveheart og Patriot klikka ekki
leikari: Will Smith og Mel Gibson
leikkona: veit ekki
bók: Kobe bókin, man ekki alveg hvað hún hét
matur: Önd
matsölustaður: American Style
lag: þau eru svo mörg get ekki valið eitt
hljómsveit: bara rapp
staður á Íslandi: Sumarbústaðurinn
staður erlendis: Bandaríkin
lið í NBA: Lakers
lið í enska boltanum: Liverpool
hátíðardagur: Jólin
alþingismaður: Hef bara ekki hugmynd
heimasíða: Karfan.is
 
 
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki? Klæði mig í búning og hita upp
 
 
Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum? Maður hugsar meira út í tapleiki þannig verður maður ekki að segja tapleikjum
 
 
Furðulegasti liðsfélaginn? Ægir Þór Steinarsson
 
 
Besti dómarinn í IE-deildinni? Simmi (Sigmundur Már Herbertsson)
 
 
Erfiðasti andstæðingurinn? Ég sjálfur
 
 
Þín ráð til ungra leikmanna? Aldrei að slaka á á æfingum, alltaf vera á fullu og ná sem mest úr æfingunum.
 
 
Viltu fækka útlendingum í körfuboltanum á næsta ári? (Spurning frá síðasta þátttakanda í 1 á 1) Já, fínt að hafa einn kana bara og ekkert meir, enga Evrópu búa nema Íslendinga að sjálfsögðu.
 
 
Að hverju viltu spyrja þann sem verður næst í 1 á 1? Hver finnst þér að hefði átt að vera MVP í NBA deildinni?
 
 
Tölfræði safn KKÍ

Könnun

Verða Miami Heat NBA meistarar á næstu leiktíð?

Nei

 

Mynd af handahófi