Fullt nafn: Birna Valgarðsdóttir
 
Aldur: 33
 
Félag: Keflavík
 
Hjúskaparstaða: í sambúð
 
Nám/Atvinna: vinn við prentun
 
Happatala: 11 (5 er að koma sterk inn )
 
Hvenær hófst þú að stunda körfubolta og hvar? 13 ára með Tindastól
 
Hver var fyrsta fyrirmyndin þín í körfunni? Halli bróðir og svo AMS (Anna
María Sveins)
 
Hverjir eru bestu íslensku leikmennirnir í Iceland Express-deild karla og
kvenna og 1. deild karla? Jón Arnór og Signý, Kristinn Jónsson
 
Besti erlendi leikmaðurinn sem leikur í Iceland Express-deild karla og kvenna
og 1. deild karla? Nick Bradford og Slavica í Haukum
 
Efnilegasti leikmaður landsins um þessar mundir? Telma og Eva Rós í Keflavík
 
Hver var fyrsti þjálfarinn þinn? Atli Freyr Sveinsson stórþjálfari og
markaðsstjóri Íslensku auglýsingarstofunnar
 
Besti þjálfarinn á Íslandi í dag? Þeir eru nokkrir góðir : )
 
Uppáhals NBA leikmaðurinn þinn? Jason Kidd
 
Besti leikmaður NBA deildarinnar í dag? LeBron James
 
Hefur þú farið á NBA leik? Ef já, hvaða leik? Nei
 
Hvert er þitt uppáhalds lið í Evrópuboltanum? Ekkert sérstakt
 
Sætasti sigurinn á ferlinum? Á móti KR í bikarnum 1997
 
Sárasti ósigurinn? Á móti ÍS í bikar 1993
 
Þín uppáhalds íþrótt að frátöldum körfubolta? Frjálsar íþróttir
 
Með hvaða félögum hefur þú leikið? Tindastól, Breiðablik, Grindavík, Keflavík
 
Uppáhalds:
kvikmynd: Gladiator , Revenge of the Nerds
leikari: Russel Crowe
leikkona: Sigourney Weaver
bók: Bettý
matur: Steiktur fiskur
matsölustaður: McDONALD´S i´m lovin it
lag: I gotta feeling með Black Eyed Peas
hljómsveit: Metallica
staður á Íslandi: Skagafjörðurinn að sjálfsögðu
staður erlendis: Tyrkland
lið í NBA: Dallas Mavericks
lið í enska boltanum: Aston Villa
hátíðardagur: aðfangadagur
alþingismaður: þar er enginn þarna með viti
alþingiskona: ekki þar heldur
heimasíða: Karfan.is og smá Kefjet.is
 
Hvernig undirbýrð þú þig fyrir leiki? Borða vel fyrir leikinn, reyni að hvíla
mig ef ég get og hugsa um hvað ég þarf að gera í leiknum
 
Hvort má læra meira af sigur- eða tapleikjum? Jafnmikið af báðum
 
Furðulegasti liðsfélaginn? Það koma nokkrar sterklega til greina
 
Besti dómarinn í IE-deildinni? Lalli og Simmi hafa staðið sig best að mínu
mati
 
Erfiðasti andstæðingurinn? Það þarf að hafa aðeins fyrir Kristrúnu og Guðrúnu
Gróu annars eru margar öflugar í deildinni
 
Þín ráð til ungra leikmanna? Æfa vel og með metnaði
 
(Spurning frá Sigurði Ingimundarsyni sem var síðast í 1 á 1)
Ertu ekki örugglega að æfa mikið? Jú en ekki hvað
 
Að hverju viltu spyrja þann sem verður næst í 1 á 1? Finnst þér að a-landslið
karla og kvenna eigi að taka þátt í em á næsta ári?

Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia