25 03 2010 | 11:14
Metnaður og spennandi hugmyndir

Finnbogi Magnússon tók við formennsku í Körfuknattleiksfélagi FSU, þegar ný stjórn var kosin á aðalfundi félagsins nýverið. En hver er maðurinn og hvers vegna er hann orðinn formaður í körfuboltafélagi?
„Ég er mikill áhugamaður um körfubolta og spila reglulega til gamans en aðalstarf mitt er framkvæmdastjórn fyrirtækisins Jötunn Véla á Selfossi. Undanfarin ár hef ég starfað með góðum hópi manna við uppbyggingu félagsins undir forystu Brynjars Karls og hef í gegnum þau störf heillast af þeirri hugmyndafræði og mikla metnaði sem einkennt hefur þjálfun og uppbyggingu leikmanna. Hún miðast öll við að skapa afreksmenn í körfubolta sem jafnframt eru vel agaðir og skipulagðir einstaklingar og góðir námsmenn. Þegar ljóst varð að Brynjar Karl hyggðist draga sig til hlés og einbeita sér að rekstri fyrirtækis síns, Sideline Sports, byrjuðum við strax að undirbúa okkur fyrir framhaldið og erum á fullu þessa dagana að vinna þá undirbúningsvinnu sem við teljum nauðsynlega til að geta haldið uppbyggingu félagsins áfram“.
Eftir frábæra byrjun hins unga félags og skemmtilega stemmningu hefur veturinn í vetur verið vægast sagt erfiður. Eru menn ekkert að missa móðinn?
„Nei alls ekki. Við vissum strax í haust að þetta tímabil yrði okkur erfitt þar sem við lentum í þeirri ánægjulegu stöðu síðasta sumar að 3 okkar lykilleikmanna frá síðasta tímabili komust inn í háskóla í USA á körfuboltasamning. Ég segi ánægjulegu stöðu þrátt fyrir að þetta hafi verið mikil blóðtaka, því þetta sýndi okkur að sú uppbygging og þjálfun sem hér er unnin skilar sér í toppklassa leikmönnum sem eiga góða möguleika á að upplifa draum sinn um að komast á skólastyrk til USA og sækja sér góða menntun og þroskast sem körfuboltamenn. Mér vitanlega státar ekkert íslenskt körfuboltafélag að viðlíka árangri, þ.e. að senda 3 einstaklinga í nám til USA á sama árinu.
Til viðbótar við áðurnefnda blóðtöku kom upp agavandamál hjá okkur í haust sem þýddi brottrekstur nokkurra einstaklinga úr akademíunni út önnina, og þar með duttu þeir út úr liðinu. Við vissum um leið og ákvörðunin um brottrekstur þeirra var tekin að baráttan um að halda okkur í deildinni væri nokkurn veginn töpuð en í okkar huga eru ekki til neinar málamiðlanir þegar kemur að agabrotum. Alger reglusemi á vímuefni og tóbak er ófrávíkjanleg krafa af okkar hálfu, sama hvaða áhrif framfylgni hennar hefur tímabundið á gengi liðsins.
Til viðbótar við áðurnefnda blóðtöku kom upp agavandamál hjá okkur í haust sem þýddi brottrekstur nokkurra einstaklinga úr akademíunni út önnina, og þar með duttu þeir út úr liðinu. Við vissum um leið og ákvörðunin um brottrekstur þeirra var tekin að baráttan um að halda okkur í deildinni væri nokkurn veginn töpuð en í okkar huga eru ekki til neinar málamiðlanir þegar kemur að agabrotum. Alger reglusemi á vímuefni og tóbak er ófrávíkjanleg krafa af okkar hálfu, sama hvaða áhrif framfylgni hennar hefur tímabundið á gengi liðsins.
Það jákvæða við þetta allt er aftur á móti að ungir og efnilegir drengir sem spila allt niður í 9. flokk félagsins hafa fengið fullt af mínútum á vellinum í vetur og þroskast mikið sem leikmenn. Þetta mun nýtast félaginu vel í framhaldinu þegar kemur að því að tryggja liðinu sæti í efstu deild aftur“.
Ætlar félagið að reka körfuboltaakademíuna við fjölbrautaskólann áfram með sama sniði eða eru einhverjar breytingar fyrirhugaðar á uppbyggingu og starfsemi félagsins?
„Við erum þessa dagana að skoða málin mjög opið og ítarlega með það í huga að styrkja akademíuna, t.d. hvort rétt sé að skilja með einhverjum hætti á milli akademíunnar og meistaraflokksliðsins, þannig að leikmenn úr öðrum liðum hér á svæðinu gætu sótt grunn og undirstöðuþjálfun innan akademíunnar á skólatíma en stundað svo æfingar með sínum félagsliðum og jafnvel spilað með þeim samhliða. Við þetta myndi eðli akademíunnar vitaskuld breytast mikið, ekki væri lengur um að ræða eitt lið, heldur yrði þjálfun einstaklingsmiðaðri með það markmið fyrst og fremst að bæta tækni, leikskilning, styrk og skottækni viðkomandi einstaklinga. Þeir nemendur sem kæmu frá Selfossi og eða kæmu lengra að myndu svo æfa saman utan skólatíma og spila undir merkjum FSu. Ef þessi leið verður fyrir valinu ætti nemendum innan akademíunnar að fjölga umtalsvert sem eykur möguleika okkar á að auka gæði þjálfunarinnar enn frekar. Einnig erum við að byrja að kanna möguleika þess að stofna körfuboltaakademíu fyrir stúlkur með svipuðu sniði. Þetta er allt í skoðun og ýmis sjónarmið uppi, en möguleikarnir eru margir og miklir“.
Nú er Brynjar Karl Sigurðsson, sem verið hefur potturinn og pannan í allri uppbyggingu síðastliðin fjögur ár, horfinn á braut. Þarf félagið að byrja frá grunni eða stendur til að byggja á hans hugmyndafræði og þjálfunaraðferðum?
„Við munum auðvitað sakna Brynjars Karls enda eldhugi þar á ferð sem býr yfir gríðarlegri þekkingu á körfubolta en stefna okkar er að fylgja sem mest hans hugmyndafræði áfram. Þjálfunaraðferðinar munu að sjálfsögðu verða mikið undir nýjum þjálfara komnar“.
Þú minnist á nýjan þjálfara. Rob Newson þjálfaði akademíuna, yngri flokka og meistaraflokksliðið seinni hluta vetrar en er að hætta störfum. Er búið að ráða nýjan þjálfara? Hvernig verður þeim málum háttað?
„Við erum þessa dagana að leita logandi ljósi að nýjum þjálfara í fullt starf sem er tilbúinn til að leggja sig allan fram með okkur við áframhaldandi mótun og framtíðaruppbyggingu félagsins. Við erum þegar búnir að fá nokkrar ábendingar um einstaklinga sem gætu komið til greina en ég vil nota tækifærið og hvetja þá einstaklinga sem hafa metnað til að ná langt og eru uppfullir af spennandi hugmyndum varðandi þjálfun til að hafa samband við okkur og kynna sig og sínar hugmyndir. Við trúum því að umhverfið sem við bjóðum hljóti að vera spennandi fyrir metnaðarfulla þjálfara á Íslandi“.
Metnaður og spennandi hugmyndir, segir þú. Hver eru þá markmið félagsins?
„Markmið félagsins eru skýr. Við viljum skapa iðkendum körfubolta innan akademíu FSu bestu mögulegu aðstöðu til að ástunda körfubolta og þannig gera efnilegum og duglegum einstaklingum kleift að komast í framhaldinu í röð fremstu körfuboltamanna landsins ásamt því að eiga góða möguleika á að komast á skólastyrk til USA að námi hér loknu. Þá viljum við að í framtíðinni verði hér lið í fremstu röð, á öllum vígstöðvum“.
Viðtal: Gylfi Þorkelsson
- Haukar upp í þriðja sætið eftir sigur á Hamri
- Úrslit kvöldsins: Keflavík jók forystuna á toppnum
- Öruggur sigur Vals á Njarðvík
- Jessika Bradley til liðs við Fjölniskonur
- Skallagrímur, Keflavík og Njarðvík komin áfram í bikarkeppni drengjaflokks
- Leikbrot.is: Suljic með svakaleg tilþrif í Toyota-höllinni
- Heil umferð í Iceland Express deild kvenna í kvöld
- Oklahoma marði Golden State á útivelli - Leiktíðin búin hjá Billups
- Solna og Sundsvall með sigra - Jakob heitur gegn ecoÖrebro
- Feykir.is með veglegt myndband frá undanúrslitunum
Könnun
Mynd af handahófi