Ægir Þór Steinarsson og Tómas Heiðar Tómasson fundu loks sigur um hlegina þegar Newberry háskólinn hafði sigur á Carson-Newman skólanum í SAC-riðli NCAA II deildarinnar. Lokatölur voru 71-82 Newberry í vil á heimavelli Carson-Newman.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
22 02 2012 | 11:53
Newberry á sigurbraut eftir fjóra tapleiki þar á undan
Ægir Þór var í byrjunarliðinu gegn Carson-Newman en Tómas Heiðar var ekki í liðinu að þessu sinni. Ægir gerði 8 stig á 32 mínútum, tók 8 fráköst, gaf 3 stoðsendingar og tapaði 3 boltum. Með sigrinum er Newberry í 4. sæti SAC-riðilsins með 8 sigra og 8 tapleiki en Anderson skólinn trónir á toppnum með 15 sigra og 1 tapleik.
Næsti leikur Newberry í bandarísku háskóladeildinni er í kvöld á útivelli gegn Brevard skólanum sem er í næstneðsta sæti SAC-riðilsins.
nonni@karfan.is
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila