Í nótt fóru ellefu leikir fram í NBA deildinni þar sem Tony Parker og félagar í San Antonio Spurs unnu sinn ellefta deildarleik í röð. Þá hafði New Jersey betur gegn New York Knicks þegar liðin mættust í Madison Square Garden.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
21 02 2012 | 09:09
Ellefu sigrar í röð hjá Spurs - Nets lögðu Knicks
New York 92-100 New Jersey
Jeremy Lin fór fyrir liði New York með 21 stig, 9 stoðsendingar, 7 fráköst og 4 stolna bolta. Deron Williams var ekki á þeim buxunum að verða nýjasta fórnarlamb Linsanity og setti 38 stig á Knicks og 6 stoðsendingar.
Utah 102-106 San Antonio
Tony Parker fór fyrir Spurs með 23 stig, 11 stoðsendingar og 6 fráköst. Hjá Utah var Al Jefferson með 20 stig og 11 fráköst.
Önnur úrslit næturinnar:
Chicago 90-79 Atlanta
Milwaukee 90-93 Orlando
Houston 97-93 Memphis
Dallas 89-73 Boston
Oklahoma 101-93 New Orleans
Denver 103-101 Minnesota
Phoenix 104-88 Washington
LA Lakers 103-92 Portland
Golden State 104-97 LA Clippers
nonni@karfan.is
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila