NÝJUSTU ÚRSLIT...

http://myndir.karfan.is/ |
Leikir kvöldsins: Fimmtándu umferð lýkur
10 02 2012 | 11:47

Leikir kvöldsins: Fimmtándu umferð lýkur

Í kvöld lýkur fimmtándu umferð í Iceland Express deild karla þegar tveir leikir fara fram. KR tekur á móti Stjörnunni og Haukar fá Keflavík í heimsókn. Báðir leikir eru í beinni netútsendingu og hefjast þeir kl. 19:15 (sjá Haukar TV og KR TV).
 
Þrír leikir eru svo á dagskrá í 1. deild karla í kvöld, þeir hefjast einnig kl. 19:15. FSu fær Breiðablik í heimsókn, Skallagrímur tekur á móti Ármanni og Hamar fær ÍA í blómabæinn.
 

Keyrir á vefumsjónarkerfi Smartmedia