Landsliðsmaðurinn Jakob Örn Sigurðarson var í gærkvöldi útnefndur íþróttamaður ársins 2011 í Sundsvall. Við sama tilefni var körfuboltalið Sundsvall valið lið ársins. Jakob kemur því drekkhlaðinn verðlaunum frá árinu 2011 þar sem hann var einnig útnefndur körfuknattleiksmaður ársins á Íslandi á síðastliðnu ári.
NÝJUSTU ÚRSLIT...
10 02 2012 | 11:17
Jakob íþróttamaður ársins í Sundsvall
Jakob situr ekki aðgerðalaus því í kvöld taka hann og Hlynur Bæringsson á móti Helga Magnússyni og félögum í 08 Stockholm HR. Pavel Ermolinski er enn fjarverandi í liði Sundsvall sökum meiðsla.
Karfan.is óskar Jakobi til hamingju með útnefninguna.
- Karfan TV: Erum að skoða hvernig menn stóðu sig á tímabilinu
- Við hlupum á okkur - leiðrétting
- Körfuboltabúðir í Vodafonehöllinni 4.-7. júní
- Flake verður með silfurliði Þórs á næstu leiktíð
- Karfan TV: Fáum tækifæri til þess að miða okkur aftur við þá í ágúst
- Spurs sópuðu Clippers - LeBron fór mikinn þegar Miami jafnaði
- Sara, Martin og Valur í úrvalsliðum á mótinu
- Rán í Vasalund - Danir gáfust aldrei upp og hirtu bronsið
- Finnaleikurinn sat enn í 16 ára liðinu
- U18 kk Ísland 64-105 Finnland: Finnar kjöldrógu íslenska liðið
Senda frétt
Prenta
Deila